Lögboðin starfsábyrgðartrygging aðila sem dreifir tryggingu sem aukaafurð
Samkvæmt lögum skulu aðilar sem dreifa tryggingum sem aukaafurð vera með í gildi starfsábyrgðartryggingu. Tryggingin hefur það hlutverk að bæta fjártjón sem þeir kunna að valda viðskiptavinum sínum.
Tryggingin byggir á kröfugerðarreglu. Það þýðir að krafa eða vitneskja um kröfu þarf að hafa borist á meðan tryggingin er í gildi. Ekki er skilyrði að tryggingin hafi verið í gildi þegar atburður, sem olli tjóninu, átti sér stað.
Tryggingin bætir
- Almennt fjártjón vegna gáleysis.
Tryggingin bætir ekki
- Tjón sem tryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem aðila sem dreifir tryggingu sem aukaafurð.
- Sektir og önnur viðurlög sem falla á tryggðan.
- Líkamstjón og skemmdir á munum.
- Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
- Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.