Hoppa yfir valmynd

Kæli- og frystivörutrygging

Kæli- og frystivörutrygging er fyrir alla sem framleiða kæli- eða frystivörur. Einnig fyrir aðila sem selja vörur sem þurfa að vera í kæli eða frysti.

Tryggingin bætir

Bilun og straumrof

  • Tjón á tryggðum vörum vegna þess að kælimiðill streymir út og/eða hiti hækkar/lækkar vegna skyndilegra og ófyrirsjáanlegra atvika.

Tryggingin bætir ekki

  • Tjón á vörum sem voru gallaðar þegar þeim var komið fyrir í geymslu.
  • Tjón á vörum í geymslum sem kældar eru með þurrís eða ísmolum.
  • Tjón á vörum sem geymdar hafa verið lengur en hæfilegt getur talist.
  • Tjón vegna rekstrartaps eð annars óbeins tjón.
  • Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
  • Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Aðrar upplýsingar