Hóplíftrygging
Hóplíftrygging er líftrygging sem fyrirtæki geta keypt fyrir starfsfólk sitt. Tryggingin er í gildi á starfsmanni á meðan að hann er í starfi hjá fyrirtækinu.
Tryggingarfjárhæð er ákveðin fyrirfram og greidd til rétthafa ef hinn tryggði fellur frá, hvort sem orsökin er slys eða sjúkdómur.
Líftryggingabætur eru greiddar út í einu lagi til maka eða lögerfinga og eru þær skattfrjálsar og verðtryggðar.

Tryggingin bætir
-
Greiddar bætur til rétthafa vegna andláts tryggðs.
Tryggingin bætir ekki
-
Ef tryggður sviptir sig lífi innan eins árs frá því að tryggingin tók gildi.
Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Skilmálar og upplýsingaskjal
Aðrar tryggingar
Við mælum með því að öll fyrirtæki stór og smá séu með ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar, slysatryggingu launþega og lausafjártryggingu.