Lausafjártrygging
Lausafjártrygging nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign. Má þar nefna vélar, lager, tölvubúnað, húsgögn og verkfæri. Tryggingin bætir tjón vegna bruna en einnig er hægt að bæta við vernd vegna vatnstjóna, innbrota, óveðurs og tjóna á kæli- og frystivörum.
Við tjón verður oft mikill kostnaður vegna hreinsunar, förgunar og uppsetningar sem hægt er að tryggja sérstaklega. Tryggingunni fylgir vernd fyrir náttúruhamförum frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
Tryggingin bætir
Brunatrygging
- Tjón vegna eldsvoða, eldinga og sprenginga.
- Tjón á gufukatli eða háþrýstisuðukerfi vegna yfirþrýsting við venjulega notkun.
- Tjón vegna skyndilegs sótfalls.
- Tjón af völdum loftfara og hluta sem frá þeim falla.
- Tjón og kostnað vegna slökkvi- og björgunaraðgerða með það að markmiði að forðast eða takmarka tjón.
Valfrjáls vernd
- Vatnstjón vegna leka úr leiðslukerfi, skyndilegt úrhelli og asahláku, leka á olíu eða kælivökva.
- Tjón vegna innbrots og ráns.
- Óveðurstjón á munum innanhús þegar vindur nær 28,5 metrum á sekúndu og hefur rofið þak, glugga eða aðra hluti hússins.
Tryggingin bætir ekki
- Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
- Þegar hlutir sviðna, bráðna eða ofhitna án þess að eldur sé laus.
- Vatnstjón vegna utanaðkomandi vatns.
- Tjón af völdum byggingarvinnu eða viðhalds.
- Tjón sem verður við áfyllingu á olíu- eða kælivökva.
- Tap eða skemmdir á olíu- eða kælivökva.
- Tjón á rúðum, póstkössum og öðru sem tilheyrir húseignum.
- Tjón á lausafé sem geymt er utandyra.
Trygging frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er einnig innifalin. Sú trygging bætir tjón vegna eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.