Fréttasafn

|

16.10.2026

Góð vetr­ar­dekk skipta sköpum á veturna

Þegar vetur gengur í garð geta akst­urs­að­stæður breyst hratt. Snjór, ísing og hálka draga úr veggripi og auka hættuna á að ökumaður missi stjórn á bílnum. Góð vetr­ar­dekk eru því gríð­ar­lega mikil­vægur þáttur í umferðarör­yggi sem enginn ætti að gefa afslátt á.

Með endurskini sést viðkomandi allt að fimm sinnum fyrr

---english below---

Á hálum vegi lengist heml­un­ar­vega­lengd til muna og erfitt getur verið að stöðva í tæka tíð. Það sést vel í tjóna­tölum hjá VÍS en að meðal­tali eru um sex aftaná­keyrslur tilkynntar til VÍS á hverjum degi yfir árið. Þeim fækkar yfir sumar­mán­uðina og eru þá að jafnaði um fjórar á dag. Yfir vetr­ar­mán­uðina fjölgar þeim hins vegar í sjö til átta á dag.

Skoðum dekkin áður en vetur skellur á og tryggjum að okkar dekk séu í góðu ástandi.

  • Skoðið slit, skemmdir og mynst­urs­dýpt dekkj­anna en mynst­urs­dýptin má ekki vera minni en 3 mm sama hvar er á slit­fleti dekks.

  • Fylgist með að loft­þrýst­ingur sé réttur.

  • Notið dekkja­hreinsi af og til á dekkin yfir vetur­inn.

  • Dragið úr hraða þegar færð versnar.

  • Gefið ykkur góðan tíma og gerið ráð fyrir lengri heml­un­ar­vega­lengd.

Ef kominn er tími til að endur­nýja vetr­ar­dekkin geta viðskipta­vinir VÍS nýtt sér afslætti hjá fjöl­mörgum samstarfs­að­ilum. Nánari upplýs­ingar er að finna í VÍS appinu.

---

Good Winter Tyres Are Essential for Safe Winter Driving

When winter arri­ves, driving conditions can change rapidly. Snow, ice and slippery roads reduce grip and increase the risk of losing control of a vehicle. Good winter tyres are therefore essential for road safety, and their import­ance should never be underestima­ted.

On slippery roads, braking dist­ances increase significantly, making it difficult to stop in time. This is reflected in VÍS claims data. On average, around six rear-end coll­isions are reported to VÍS every day throug­hout the year. The number decreases during the summer months, averaging around four per day, but rises to seven to eight per day during the winter months.

Check your tyres before winter sets in and make sure they are in good condition.

  • Check for wear, damage and tread depth. The tread depth must be at least 3 mm at all points across the tyre's tread surface.

  • Make sure your tyres are inflated to the correct pressure.

  • Clean your tyres with a tyre cleaner from time to time throug­hout the winter.

  • Reduce your speed when road conditions deter­i­orate.

  • Allow plenty of time for your journey and remember that braking dist­ances are longer in winter conditi­ons.

If it is time to replace your winter tyres, VÍS customers can take advantage of discounts from a number of our partners. Further information is available in the VÍS app.

Fréttasafn
Deila frétt