Hoppa yfir valmynd

Víðtæk flutningstrygging

Víðtæk flutningstrygging er fyrir þá sem láta flytja fyrir sig verðmæti með viðurkenndum flutningsaðila milli landa eða innanlands. Verðmætin geta verið framleiðsluvörur, búslóðir og annað í þeim dúr.

Tryggingin er víðtæk og veitir því góða vernd í flutningum. Mögulegt er einnig að velja takmarkaða flutningstryggingu en við mælum ekki með því nema í undantekningartilvikum.

Tryggingin bætir

  • Tjón á farminum vegna skyndilegra og óvæntra óhappa í flutningi.
  • Sameiginlegt tjón og björgunarkostnað sem skipt er niður eftir ákveðnum reglum.
  • Eðlilegan kostnað við að losa farminn ef umsaminni ferð verður slitið áður en henni lýkur vegna bótaskylds tjóns. Einnig bætir tryggingin geymslukostnað og kostnað við að koma farminum á ákvörðunarstað.
  • Tjón vegna sjóráns.
  • Tjón vegna endurkröfu sem kann að falla á eiganda farmsins vegna ábyrgðar í ,,beggja sök í árekstri" (Both to Blame Collision Clauses) í flutningssamningi.

Tryggingin bætir ekki

  • Tjón ef kostnaður er lægri en eigin áhætta.

Skemmdir, kostnað eða ef vara glatast ef tjónið hlýst af:

  • Venjulegum leka, venjulegri rýrnun í þunga eða rúmmáli, eðlilegu sliti eða tæringu.
  • Innri skemmd.
  • Töf, jafnvel þótt hún hafi orðið vegna bótaskylds tjóns.
  • Gjaldþroti eða fjárhagslegum vanefndum eiganda skipsins, leigutaka eða rekstraraðila.
  • Farbanni, fartöf eða kyrrsetningu og afleiðingum sem af því leiðir eða tilraunum til slíks.
  • Tundurdufli, tundurskeyti, sprengju eða öðrum yfirgefnum stríðsvopnum.
  • Hryðjuverkum eða pólitískum aðgerðum.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.

Aðrar upplýsingar

Skoða fleiri tryggingar

Við mælum með því að öll fyrirtæki stór og smá séu með ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar, slysatryggingu launþega og lausafjártryggingu.

Ábyrgð­ar­trygging atvinnu­rekstrar

Tryggingin er ætluð fyrirtækjum og rekstraraðilum í þeim tilgangi að bæta tjón þegar skaðabótaábyrgð skapast.

Slysa­trygging laun­þega

Atvinnurekendur eru samkvæmt kjarasamningum skyldugir að bæta slys sem starfsfólk verður fyrir í vinnu sinni. Slysatrygging launþega er sniðin að þörfum atvinnurekenda til að uppfylla skyldur sínar gagnvart starfsfólki sínu.

Slysa­trygging

Slysatrygging er fyrir einyrkja og þau sem eru ekki í stéttarfélagi. Hún er einnig fyrir þau sem eru slysatryggð en vilja eiga rétt á hærri bótum eða víðtækari vernd.

Sjúkra­trygging

Sjúkratrygging er fyrir þau sem vilja vera vel tryggð ef þau fá sjúkdóm og geta ekki stundað vinnu sína lengur.

Lausa­fjár­trygging

Tryggingin nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign. Má þar nefna vélar, lager, tölvubúnað, húsgögn og verkfæri.

Víðtæk eigna­trygging

Tryggingin nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign.

Rekstr­ar­stöðv­un­ar­trygging

Tryggingin bætir rekstrartap sem verður við stöðvun rekstrar og leiðir af sér samdrátt í sölu eða þjónustu.

Lögboðin ökutækja­trygging

Skyldutrygging fyrir öll ökutæki. Tryggingin bætir tjón sem ökutækið þitt veldur öðrum sem og slys sem þú eða sá sem keyrir ökutækið verður fyrir.

Kaskó­trygging ökutækis

Kaskótrygging bætir öll tjón á bílnum þínum nema annað sé tekið fram í skilmála eða skírteini.

Vinnu­véla­trygging

Tryggingin tekur á tjónum sem verða á tryggðri vinnuvél vegna skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks.

Húseig­enda­trygging atvinnu­hús­næðis

Tryggingin veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndilegum atburðum sem leiða til tjóns á fasteignum.

Víðtæk flutn­ings­trygging

Tryggingin er fyrir þá sem láta flytja fyrir sig verðmæti með viðurkenndum flutningsaðila milli landa eða innanlands.