Fiski­báta­trygging

Fiski­báta­trygging hentar eigendum fiski­báta. Hún er samsett úr tveimur trygg­ingum. Húftrygg­ingu sem bætir tiltekin tjón sem verða á bátnum og ábyrgð­ar­trygg­ingu sem bætir tjón þriðja aðila.

Vilji eigandi báts aðeins tryggja hann fyrir altjóni er hægt að velja altjóns­trygg­ingu fyrir báta og skip í stað fiski­báta­trygg­ingar.

Tryggingin bætir

Húftrygging

  • Tjón af völdum elds­voða, eldingar eða spreng­ingar.

  • Tjón vegna strands, ásigl­ingar eða árekstrar á annað fljót­andi far.

  • Tjón vegna óveð­urs, brot­sjós, jarð­skjálfta, eldgosa, aurskriða og snjóflóða.

  • Tjón vegna innbrots, þjófn­aðar eða skemmd­ar­verka.

  • Altjón ef bátur ferst eða týnist og hefur ekki fundist þremur mánuðum síðar.

Ábyrgð­ar­trygging

  • Beint líkams- eða muna­tjón þriðja aðila vegna skaða­bóta­ábyrgðar sem fellur á trygg­ing­ar­taka vegna tjóns sem bátur veldur með árekstri eða verður vegna mistaka við stjórnun hans.

Tryggingin bætir ekki

Húftrygging

  • Tjón vegna efnis­galla eða smíð­is­galla.

  • Tjón sem stafar af ófull­nægj­andi viðhaldi, fúa, tæringu eða sliti.

  • Tjón sem rakið verður til hönn­un­ar­galla

  • Óbeint tjón svo sem afla­tjón og kostnað sem stafar af töf.

Ábyrgð­ar­trygging

  • Skaða­bóta­kröfu frá starfs­fólki eiganda eða útgerð­ar­manns báts­ins, né skaða­bóta­kröfu frá eigendum afla eða annars sem báturinn flytur.

  • Sektir og önnur refsi­við­ur­lög.

  • Vinsam­legast athugaðu að umfjöllun um trygg­inguna er ekki tæmandi. Nánari upplýs­ingar er að finna í skil­mála trygg­ing­ar­innar.

  • Sé ósam­ræmi milli umfjöll­un­ar­innar og skil­málans þá gildir skil­mál­inn.

Altjónstrygging báta og skipa

Skil­málar og aðrar upplýs­ingar

Trygg­inga­skil­málar eru samn­ingur þinn við VÍS. Mikil­vægt er að þú kynnir þér skil­málana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en trygg­ingin er tekin.

Í upplýs­inga­skjali er að finna stutta saman­tekt á helstu þáttum trygg­ing­ar­innar. Upplýs­inga­skjöl eru stöðluð skjöl sem öllum trygg­inga­fé­lögum ber að birta og auðveldar þannig viðskipta­vinum trygg­inga­fé­lag­anna að bera saman trygg­ingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Aðrar trygg­ingar

Við mælum með því að öll fyrir­tæki stór og smá séu með ábyrgð­ar­trygg­ingu atvinnu­rekstrar, slysa­trygg­ingu laun­þega og lausa­fjár­trygg­ingu.

Trygg­ingin er ætluð fyrir­tækjum og rekstr­ar­að­ilum í þeim tilgangi að bæta tjón þegar skaða­bóta­ábyrgð skap­ast.

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar

AA20

Ábyrgðartryggingar

Atvinnu­rek­endur eru samkvæmt kjara­samn­ingum skyldugir að bæta slys sem starfs­fólk verður fyrir í vinnu sinni. Slysa­trygging laun­þega er sniðin að þörfum atvinnu­rek­enda til að uppfylla skyldur sínar gagn­vart starfs­fólki sínu.

Sjúkra- og slysatryggingar

Slysatrygging launþega

SÞ20

Slysa­trygging er fyrir einyrkja og þau sem eru ekki í stétt­ar­fé­lagi. Hún er einnig fyrir þau sem eru slysa­tryggð en vilja eiga rétt á hærri bótum eða víðtækari vernd.

Sjúkra- og slysatryggingar

Slysatrygging

SS10

Sjúkra­trygging er fyrir þau sem vilja vera vel tryggð ef þau fá sjúkdóm og geta ekki stundað vinnu sína lengur.

Sjúkra- og slysatryggingar

Sjúkratrygging

SJ11

Trygg­ingin nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign. Má þar nefna vélar, lager, tölvu­búnað, húsgögn og verk­færi.

Eignatryggingar

Lausafjártrygging

EL10

Trygg­ingin nær til þeirra muna sem ekki eru hluti af húseign.

Eignatryggingar

Víðtæk eignatrygging

EE10

Trygg­ingin bætir tapaða fram­legð sem verður við stöðvun rekstrar og leiðir af sér samdrátt í sölu eða þjón­ustu.

Eignatryggingar

Rekstrarstöðvunartrygging

ER20

Skyldu­trygging fyrir öll ökutæki. Trygg­ingin bætir tjón sem ökutækið þitt veldur öðrum sem og slys sem þú eða sá sem keyrir ökutækið verður fyrir.

Ökutækjatryggingar

Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækis

BA10

Kaskó­trygging bætir öll tjón á bílnum þínum nema annað sé tekið fram í skil­mála eða skír­teini.

Ökutækjatryggingar

Kaskótrygging ökutækis

BK10

Trygg­ingin tekur á tjónum sem verða á tryggðri vinnuvél vegna skyndi­legs og ófyr­ir­sjá­an­legs utan­að­kom­andi atviks.

Eignatryggingar

Vinnuvélatrygging

EE50

Trygg­ingin veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndi­legum atburðum sem leiða til tjóns á fast­eignum.

Eignatryggingar

Húseigendatrygging

GF10

Trygg­ingin er fyrir þá sem láta flytja fyrir sig verð­mæti með viður­kenndum flutn­ings­aðila milli landa eða innan­lands.

Flutningstryggingar

Flutningstryggingar A

MC10

Víðtæk flutningstrygging