Afla- og veiðarfæratrygging
Afla- og veiðarfæratrygging tryggir afla og/eða veiðarfæri sem eru um borð í tilteknu skipi. Tryggingin er í boði fyrir rekstraraðila sem eru með í gildi báta- eða skipatryggingu á skipinu sjálfu hjá VÍS.
Afla- og veiðarfæratrygging tryggir afla og/eða veiðarfæri sem eru um borð í tilteknu skipi. Tryggingin er í boði fyrir rekstraraðila sem eru með í gildi báta- eða skipatryggingu á skipinu sjálfu hjá VÍS.
Tryggingin bætir
-
Altjón ef hið tryggða ferst með skipinu.
-
Tjón ef það stafar beinlínis af því að skipið strandar, sekkur, því hvolfir eða það rekst á annað skip, fasta eða fljótandi hluti.
-
Tjón vegna eldsvoða.
-
Tjón á frystum afla sem orsakast af sjóskaða, skyndilegum olíu- eða vatnsleka úr leiðslum skipsins, leka frystivökvans eða óviðráðanlegri bilun eða stöðvun frystivéla eða frystikerfis.
Tryggingin bætir ekki
-
Tjón þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
-
Tjón á frystum afla vegna breytinga á hitastigi nema bilun eða stöðvun frystivéla vari samfellt í það minnsta 24 klukkustundir.
Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Skilmálar og upplýsingaskjal
Algengar tryggingar
Við mælum með því að öll fyrirtæki stór og smá séu með ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar, slysatryggingu launþega og lausafjártryggingu.