Ábyrgðartrygging sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna
Ábyrgðartryggingu sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna er ætlað að bæta tjón sjúklings/skjólstæðings eða þriðja manns. Ábyrgðartryggingin er ekki skyldutrygging en við leggjum ríka áherslu á að sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn taki þessa tryggingu til viðbótar við sjúklingatryggingu.
Tryggingin byggir á kröfugerðarreglu. Það þýðir að krafa eða vitneskja um kröfu þarf að hafa borist á meðan tryggingin er í gildi. Þó er það ekki skilyrði að tryggingin hafi verið í gildi þegar atburðurinn, sem olli tjóninu, átti sér stað.
Tryggingin bætir
- Almennt fjártjón vegna gáleysis.
Tryggingin bætir ekki
- Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.
- Líkamstjón eða skemmdir á munum.
- Sektir og önnur viðurlög.
- Tjón vegna læknismeðferðar sem fellur utan hefðbundins starfssviðs.
- Tjón vegna skemmda á erfðaefnum sjúklings.
- Tjón vegna tilrauna með lyf eða vegna klínískra tilrauna.
- Tjón sem leiðir af skaðsemisábyrgð er fellur á þig
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.
Árlega færðu upplýsingar frá okkur varðandi endurnýjun trygginga þinna. Sjá nánar á síðunni endurnýjun trygginga sem finna má hér fyrir neðan.