Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar
Samkvæmt íslenskum lögum ber einstaklingur skaðabótaábyrgð á tjóni sem hann veldur öðrum með saknæmum og ólögmætum hætti. Þessi regla er nefnd sakarregla og er grundvallarregla í íslenskum rétti.
Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar er ætluð fyrirtækjum og rekstraraðilum í þeim tilgangi að bæta tjón þegar skaðabótaábyrgð skapast.
Tryggingin bætir
- Líkamstjón starfsfólks eða annarra þegar skaðabótaábyrgð er til staðar.
- Tjón á munum þegar skaðabótaábyrgð er til staðar.
Tryggingin bætir ekki
- Tjón sem tryggður ber ábyrgð á vegna vanefnda á samningi.
- Tjón vegna skemmda eða glötunar á munum sem tryggður hefur í sinni vörslu.
- Tjón vegna eldsvoða.
- Tjón sem fellur á tryggða sem eiganda eða notanda skráningarskylds ökutækis, loftfars, skips, báts eða annars farartækis.
- Tjón vegna byggingaframkvæmda á fasteign sem tryggður á eða notar.
- Tjón sem rakin eru til mengunar. Þó getur skapast bótaskylda vegna skyndilegs atburðar.
- Vinsamlegast athugaðu að umfjöllun um trygginguna er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmála tryggingarinnar.
- Sé ósamræmi milli umfjöllunarinnar og skilmálans þá gildir skilmálinn.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.
Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.