Fréttasafn

|

19.03.2025

VÍS fylgir góðu fordæmi og tryggir þolendum ofbeldis í nánum samböndum fjár­hags­legar bætur 

VÍS hefur bætt við trygg­ing­ar­vernd fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum í heim­il­is­trygg­ingu sína. Með því hafa þau sem verða fyrir slíku ofbeldi mögu­leika á  að sækja fjár­hags­legar bætur í trygg­ingu sína. 

Vörður kynnti sambæri­lega trygg­ingu um daginn. VÍS fagnar þessu fram­taki og var strax tekin ákvörðun um að fylgja því eftir með því að bæta vernd­inni við heim­il­is­trygg­ingu félagsins svo  að viðskipta­vinir VÍS geti einnig notið hennar. Auk þess hefur verið tryggt að þau sem fá greiddar bætur úr trygg­ing­ar­vernd­inni eigi einnig rétt á áfalla­hjálp til að takast á við og vinna úr reynsl­unni.  

„Þetta er lofs­vert framtak hjá Verði og við hjá VÍS vorum öll ein­huga um að fylgja þessu strax eftir. Í mínum huga er þetta ekki samkeppn­ismál heldur miklu frekar velferð­armál og við viljum bjóða okkar viðskipta­vinum sambæri­lega vernd. Við höfum átt í góðum samtölum við Kvenna­at­hvarfið og munum njóta þeirra leið­sagnar áfram við að full­móta útfærslu trygg­ing­ar­vernd­ar­innar. Við viljum að  verndin nái til allra, óháð kyni, enda er vernd­inni ætlað að ná til allra sem verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi“ segir Guðný Helga Herberts­dóttir forstjóri VÍS.

Með aðkomu fagaðila í þessum mála­flokki er stigið mikil­vægt skref því þannig er hægt að fá stað­fest­ingu á aðstæðum þolanda, sem nægir til að hægt sé að sækja bætur, án aðkomu lögreglu eða dómstóla. Breyt­ingin hefur nú þegar tekið gildi og hefur hún ekki áhrif á verð heim­il­is­trygg­inga. Viðskipta­vinir VÍS þurfa því ekkert að gera og nær verndin nú þegar til allra sem eru með heim­il­is­trygg­ing­u. Unnið er að því að útvíkka þjón­ustuna tengda trygg­ing­unni og verður það útfært á næstu vikum og mánuðum í samráði við fagað­ila.

Fréttasafn
Deila frétt