Fréttasafn
|20.02.2023
Samstarf við Prevent
Við viljum hjálpa viðskiptavinum okkar að lenda sjaldnar í tjóni og því leggjum við mikla áherslu á forvarnir. Við erum stolt af því að eiga langa sögu um forvarnir og höfðum til dæmis mikil áhrif á notkun barnabílstóla hér á landi.

Lovísa Ólafsdóttir, sérfræðingur í forvörnum fyrirtækja hjá VÍS, Marc De Greef, eigandi og framkvæmdastjóri belgíska ráðgjafafyrirtækisins Prevent og Guðmundur Ólafsson, forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS.
VÍS býður fyrirtækjum í viðskiptum upp á öfluga forvarnaþjónustu og við erum sífellt að leita nýrra leiða til að gera enn betur. Við höfum því hafið samstarf við belgíska ráðgjafafyrirtækið Prevent til þess að efla enn frekar forvarnafræðslu hjá okkur. Ráðgjafar Prevent hafa áralanga reynslu í öryggisstjórnun, öryggismenningu og forvörnum.
Við erum því virkilega spennt fyrir samstarfinu og hlökkum til að bjóða upp á spennandi námskeið fyrir viðskiptavini okkar.