Fréttasafn

|

08.02.2023

Rafeyri hlýtur Forvarna­verð­laun VÍS

Örygg­ismál og forvarnir voru til umræðu á Forvarna­ráð­stefnu VÍS sem fram fór í Hörpu í dag. Yfir­skriftin var ,,Hvernig mætum því óvænta — af öryggi.“ Ráðstefnan, sem var fyrst haldin árið 2010, hefur skipað sér sess sem einn fjöl­sótt­asti viðburður sinnar tegundar á Íslandi. Fjöl­mennt var á ráðstefn­unni en á þriðja hundrað hlýddi á erindi sérfræð­inga og stjórn­enda sem deildu reynslu sinni af forvörnum og örygg­is­málum.

Forvarna­verð­laun VÍS voru einnig afhent í dag en verð­launin hlýtur það fyrir­tæki sem þykir skara fram úr í örygg­is­málum og er öðrum fyrir­tækjum góð fyrir­mynd. Verð­launað er fyrir sterka örygg­is­menn­ingu þar sem unnið er mark­visst í að efla öryggis­vitund og örygg­is­hegðun. Að þessu sinni hlaut rafverktakinn Rafeyri forvarna­verð­laun VÍS.

Rík örygg­is­menning hjá Rafeyri

Stjórn­endur Rafeyrar eru meðvit­aðir um hvaða örygg­is­menning ríkir innan vinnu­stað­arins og hvaða áhrif þeir hafa á hana. Örygg­is­stjórnun innan fyrir­tæk­isins á sér djúpar rætur og nær í gegnum alla starf­sem­ina. Rík áhersla er lögð á að allt starfs­fólk sé meðvitað um áhættu­þætti í umhverfinu með örygg­is-og forvarna­þjálfun. Starfs­fólk er metið út frá kunn­áttu og þekk­ingu. Það fær svo ákveðna einkunn í kerfi sem Rafeyri hefur þróað og aðlagað að starf­sem­inni. Þannig er tryggt að réttur einstak­lingur sé valinn í verk­efnin, s.s. að hann sé með rétta kunn­áttu og þekk­ingu.

Einnig hefur Rafeyri þróað app fyrir verk­færin sem heldur utan ástand þeirra. Með því er tryggt að öryggið sé í fyrir­rúmi, þ.e. að öll verk­færi séu í góðu ásig­komu­lagi og endur­nýjuð á réttum tíma. Tíðni vinnu­slysa á starfs­fólki Rafeyrar er með því lægsta sem sést hjá VÍS allt frá upphafi — en Rafeyri hefur verið í viðskiptum hjá VÍS í tæp 30 ár.

Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS:

„Það er okkur mikill heiður að verð­launa viðskipta­vini okkar sem skara fram úr í örygg­is­málum og eru öðrum fyrir­tækjum góð fyrir­mynd. Við viljum styðja viðskipta­vini okkar við að skapa sterka og öfluga örygg­is­menn­ing­u. Því við vitum árangur í örygg­is­málum er ekki heppni — heldur ákvörð­un.“

Fréttasafn
Deila frétt