Fréttasafn

|

19.01.2023

Asahláka á landinu

Asahláka verður á landinu föstu­daginn 20. janúar og viljum við vekja athygli á eftir­far­andi:

Viðbrögð við vatns­tjóni

  • Ef um neyð­ar­tilvik er að ræða hringdu í 112.

  • Ef þú veist ekki hvert þú átt að snúa þér — getur þú hringt í neyð­ar­þjón­ustu okkar í síma 560 5000. Við erum á vakt allan sólar­hringinn og leið­beinum þér um næstu skref.

  • Reyndu að koma í veg fyrir frekara tjón ef þú hefur mögu­leika á því.

  • Ef um vatns­tjón úr lögnum er að ræða, þarftu að skrúfa fyrir vatns­inn­takið til að koma í veg fyrir frekara tjón.

  • Við mælum með að þú takir myndir af vett­vangi.

  • Tilkynntu tjónið til okkar.

Er tjónið bætt?

  • Húseig­enda­trygging bætir meðal annars tjón vegna asahláku eða skyndi­legs úrhellis þar sem vatn streymir frá jörðu og inn í húsnæði.

  • Ef vatn kemur inn í húsnæði frá svölum, þaki, veggjum, þakrennu eða frárennslis­leiðum þeirra og veldur tjóni er það því miður ekki bætt.

Hafðu endi­lega samband við okkur ef eitt­hvað er óljóst og við aðstoðum þig með ánægju.

Fréttasafn
Deila frétt