Ársskýrsla VÍS 2022
Ársskýrsla VÍS fyrir árið 2022 er komin út. Ársskýrslan inniheldur einnig sjálfbærniuppgjör ársins.
![](https://images.prismic.io/vis-is/104cbc68-e845-4826-b5a0-194e5199e89b_Bill_x-large4800x3200.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C288%2C4800%2C2620&w=916&h=500&fit=max&q=50)
Hagnaður ársins var 940 milljónir þrátt fyrir talsverðar áskoranir á eignamörkuðum. Hagnaður af vátryggingarekstri nam 694 milljónum og samsett hlutfall ársins var 99,2%.
Við unnum ýmsa sigra á árinu 2022
- Við þróuðum nýtt vildarkerfi, nýtt app, lögðum aukna áherslu á að bæta upplifun viðskiptavina okkar
- Við héldum stærstu forvarnaráðstefnu hér landi
- Stafræn vegferð var á fullri ferð og nú skrást 80% allra tjónstilkynninga sjálfvirkt í kerfin okkar.
- Ökuvísir hélt áfram að slá í gegn og hlaut verðlaun fyrir app ársins og tæknilausn ársins á Íslensku vefverðlaununum.
- Við settum okkur metnaðarfull markmið í jafnréttismálum og urðum hæst allra tryggingafélaga í UFS mati Reitunar.