Fréttasafn

|

21.09.2022

VÍS stofnar SIV eign­a­stýr­ingu

VÍS hefur ákveðið að útvíkka starf­semi sína og bjóða upp á sjóða- og eign­a­stýr­ingu.

Stofnað verður nýtt dótt­ur­félag undir starf­semina sem hlýtur nafnið SIV eign­a­stýring. Félagið mun í fram­haldi sækja um starfs­leyfi til eign­a­stýr­ingar og rekstrar sjóða — en stefnt er að því að starf­semi félagsins hefjist um leið og starfs­leyfi frá Seðla­banka Íslands liggur fyrir.

Góður árangur í fjár­fest­ingum VÍS
Árangur VÍS í fjár­fest­ingum hefur verið mjög góður á undan­förnum árum. Fjár­fest­ing­ar­tekjur félagsins frá árinu 2018 nema um 21 millj­arði króna og telja fjár­fest­ing­ar­eignir þess nú um 45 millj­arða króna. Fjár­fest­ingar eru önnur af tveimur grunnstoðum í starf­semi VÍS — og því fellur eign­a­stýring vel að starf­semi félags­ins. VÍS mun fela SIV eign­a­stýr­ingu að stýra fjár­fest­ing­ar­eignum sínum.

Reynsla í lykil­hlut­verki
VÍS mun eiga ráðandi hlut í SIV eign­a­stýr­ingu — og mun eitt fara með virkan eign­ar­hlut í félag­inu. Aðrir helstu hlut­hafar verða Arnór Gunn­ars­son, nú forstöðu­maður fjár­fest­inga hjá VÍS, og Þorkell Magnús­son, sem starfað hefur sem forstöðu­maður sjóð­a­stýr­ingar Kviku banka — en þeir munu jafn­framt starfa hjá félag­inu. Arnór Gunn­arsson verður fram­kvæmda­stjóri SIV eign­a­stýr­ingar, en hann hefur starfað á íslenskum fjár­mála­markaði síðan 2001. Þorkell verður forstöðu­maður sjóð­a­stýr­ingar hjá SIV eign­a­stýr­ingu, en reynsla hans á fjár­mála­markaði nær aftur til ársins 1998. Áður störfuðu Arnór og Þorkell saman hjá Öldu sjóðum, Stefni og Kaupþingi.

Tæki­færi á íslenskum fjár­mála­markaði
Örar samfé­lags­breyt­ingar kalla á stöðuga endur­skoðun á þjón­ustu­fram­boði, ekki síst í trygg­inga- og fjár­mála­þjón­ustu. Þessi útvíkkun á starf­semi VÍS endur­speglar þá þróun sem hefur átt sér stað víða í Evrópu þar sem trygg­inga­félög hafa boðið  upp á fjöl­breyttari trygg­ing­a-og fjár­mála­þjón­ustu. Á undan­förnum árum hefur verð­bréfa­mark­aður verið að byggjast upp hér á landi og hefur fjár­fest­inga­kostum í skráðum verð­bréfum fjölgað til muna. Á sama tíma hefur þátt­tak­endum á markaði fjölgað tals­vert með aukinni þátt­töku almenn­ings á skráðum hluta­bréfa­markaði og uppfærslu Íslands í flokk nýmark­aðs­ríkja hjá alþjóð­lega vísi­tölu­fyr­ir­tækinu FTSE Russell. Því er ljóst að spenn­andi tæki­færi eru til staðar á íslenskum fjár­mála­mark­aði.

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS:

„Við leggjum ríka áherslu á að VÍS þróist í takt við samfé­lagið og horfum til þess að bjóða upp á fjöl­breyttari trygg­inga- og fjár­mála­þjón­ustu. Sterk staða á trygg­inga­mark­aði, breiður viðskipta­vina­grunnur, fjár­hags­legur styrkur, öflugur tækni­legur grunnur og góður árangur í fjár­fest­ingum — eru styrk­leikar sem við viljum byggja á. Við höfum góðan grunn og afar sterka innviði til þess að taka næstu skref. Ég trúi því að árangur hins nýja félags muni byggja á umtals­verðri þekk­ingu og reynslu öflugs starfs­fólks í fjár­fest­ingum og eign­a­stýr­ingu. Ég tel að þetta skref í útvíkkun starf­sem­innar, sem eign­a­stýr­ingin felur í sér, sé mikið heilla­skref — og auðvitað mikil tímamót í sögu félags­ins.“

 

Fréttasafn
Deila frétt