Fréttasafn

|

13.10.2022

VÍS hlýtur Jafn­væg­isvog FKA í fjórða sinn!

Við erum virki­lega stolt af því að hafa hlotið viður­kenn­ingu Jafn­væg­is­vogar FKA í fjórða sinn á dögunum.

Jafn­væg­is­vogin er hreyfiafls­verk­efni FKA en viður­kenn­inguna hljóta þau fyrir­tæki sem hafa náð að jafna hlut­fall kynja í efsta lagi stjórn­unar. Við erum því gríð­ar­lega stolt af því að hafa hlotið viður­kenn­inguna þrisvar. Við styðjum heims­markmið fimm sem fjallar um jafn­rétti kynj­anna og því leggjum við mikla áherslu á mála­flokk­inn.

Anna Rós Ívars­dóttir er stolt af viður­kenn­ing­unni. „Und­an­farin ár höfum við mark­visst unnið að því að auka hlut­fall kvenna á meðal stjórn­enda VÍS. Þess vegna erum við stolt af því að hafa hlotið viður­kenn­ingu Jafn­væg­is­vogar FKA í fjórða sinn — en þetta er hvatn­ing­ar­verk­efni sem miðar að því að hvetja fyrir­tæki til þess að huga að jafn­vægi kynj­anna meðal stjórn­enda. Við erum stolt af því að VÍS er sá vinnu­staður þar sem bæði kynin hafa jafna mögu­leika — jafn­rétti er nefni­lega ákvörð­un.“

Fréttasafn
Deila frétt