Fréttasafn

|

26.08.2022

VÍS til fyrir­myndar

Nýlega hlaut VÍS viður­kenn­ingu fyrir góða stjórn­ar­hætti og hlaut um leið nafn­bót­ina Fyrir­mynd­ar­fyr­ir­tæki í góðum stjórn­ar­háttum. Þetta skiptir okkur miklu máli því við leggjum mikla áherslu á góða stjórn­ar­hætti.

Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður VÍS, veitti viðurkenningunni móttöku.

Stjórn­vísir, Viðskipta­ráð, Samtök atvinnu­lífsins og Nasdaq Iceland veita viður­kenn­ing­arnar og eru fyrir­mynd­ar­fyr­ir­tækin 16 tals­ins. Þau eru í fjöl­breyttri starf­semi og má þar nefna fjár­mála- og trygg­inga­starf­semi, fjar­skipti, fjöl­miðla­rekstur og verk­fræði­þjón­usta. Fyrir­tækin þykja vel að nafn­bót­inni komin enda þykja starfs­hættir stjórna þeirra vel skipu­lagðir og fram­kvæmd stjórn­ar­starfa til fyrir­mynd­ar. Við erum auðvitað gríð­ar­lega stolt að tilheyra þessum flotta hópi.

Eftir­talin fyrir­tæki eru Fyrir­mynd­ar­fyr­ir­tæki í góðum stjórn­ar­háttum:

  • Arion banki hf.

  • Eik fast­eigna­félag hf.

  • Íslands­sjóðir hf.

  • Kvika banki hf.

  • Lands­bankinn hf.

  • Lána­sjóður sveit­ar­fé­laga ohf.

  • Mannvit hf.

  • Reginn hf.

  • Reikni­stofa bank­anna hf.

  • Reitir hf.

  • Stefnir hf.

  • Sýn hf.

  • TM hf.

  • Vátrygg­inga­félag Íslands hf.

  • Vörður hf.

  • Ölgerðin Egill Skalla­gríms hf. 

Fréttasafn
Deila frétt