Fréttasafn

|

21.03.2022

Við tökum vel á móti vinum okkar frá Úkraínu

Það er okkur ljúft og skylt að taka vel á móti flótta­fólki sem kemur hingað til lands frá Úkraínu. Þeir flótta­menn sem dvelja á heim­ilum viðskipta­vina okkar eða í híbýlum í eigu viðskipta­vina fá sjálf­krafa sömu trygg­inga­vernd og viðskipta­vinir, þeim að kostn­að­ar­lausu.

Trygg­inga­verndin felur meðal annars í sér innbús­trygg­ingu og innbúskaskó fyrir persónu­lega muni sem það hefur með sér eða mun eignast meðan það dvelur hér á landi. Auk þess fellur slysa­trygging í frítíma og ábyrgð­ar­trygging einstak­lings undir trygg­inga­vernd­ina.

Ekki þarf að sækja sérstak­lega um trygg­inguna og trygg­ingin tekur strax gildi fyrir flótta­fólkið, en þegar viðkom­andi einstak­lingar flytja í varan­legt húsnæði þarf það að sækja um sér F+ trygg­ingu og við aðstoðum við að veita viðeig­andi vernd.

Trygg­ingin er í boði fyrir alla þá sem tilheyra þessum hópi fólks og dvelja á heim­ilum viðskipta­vina í F plús sem opna heimili sín og mun ekki hafa áhrif á trygg­inga­kjör viðskipta­vina okkar.

Uppfært, úrræði þetta gildir til 1. apríl 2024.

Fréttasafn
Deila frétt