Fréttasafn

|

07.11.2022

Vátrygg­inga­fé­lögin styrkja hjarta­deild Land­spítala

Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja, fyrir hönd vátrygg­inga­fé­lag­anna Sjóvár, TM, VÍS og Varðar, munu styrkja hjarta­deild Land­spítala um 18 millj­ónir króna á næstu þremur árum en skuld­binding þess efnis var undir­rituð 1. nóvember sl. 

Hjarta- og æðasjúk­dómar eru helsta dánar­orsök Íslend­inga og því er þetta framlag vátrygg­inga­fé­lag­anna mikil­vægt og styður hjarta­deild Land­spítala til nýsköp­unar í þjón­ustu við sjúk­linga. Margir hjarta­sjúk­dómar eru ekki síst afleiðing af óheil­brigðum lífstíl, eins og hreyf­ing­ar­leysi, óhollu mataræði, reyk­ingum og skertum svefn­gæðum. Lífstíls­breyt­ingar gegna mikil­vægu hlut­verki í að snúa þessari þróun við en rann­sóknir sýna að til að breyta um lífstíl þarf mun meiri stuðning og eftir­fylgni en hefð­bundin heil­brigð­is­þjón­usta veitir í dag.  

Hjarta­deild Land­spítala og heil­brigðis­tæknifyr­ir­tækið Sidekick Health hafa unnið að þróun smáfor­rits sem gerir það kleift að fylgjast með sjúk­lingum í gegnum fjar­vöktun og styðja þá til heil­brigðari lífs­hátta með mynd­böndum og hvatn­ing­ar­skila­boðum. Mark­miðið er að veita betri þjón­ustu, draga úr álagi á heil­brigðis­kerfið og auka virkni hefð­bund­inna heil­brigð­is­með­ferða með því að styðja mun betur við sjúk­linga varð­andi lífstíls­breyt­ingar. Verið er að rann­saka þessa nálgun hjá sjúk­lingum með þrjá algenga hjarta­sjúk­dóm­ana, hjarta­bilun, kransæða­sjúkdóm og gáttatif og er fyrstu niður­staðna að vænta snemma á næsta ári.  

HEIÐRÚN JÓNS­DÓTTIR, FRAM­KVÆMDA­STJÓRI SAMTAKA FJÁR­MÁLA­FYR­IR­TÆKJA: 

„Í síbreyti­legu og hröðu umhverfi okkar eykst mikil­vægi fræðslu og forvarna sífellt og hafa vátrygg­inga­fé­lögin gegnt þar mikil­vægu hlut­verki lengi. Það er ánægju­legt að trygg­inga­fé­lögin haldi áfram að styrkja hjarta­deild og geri henni þannig kleift að halda áfram að þróa og innleiða tækni­lausnir sem nýtast við þjón­ustu hjarta­sjúk­linga. Hjarta- og æðasjúk­dómar eru helstu dánar­or­sakir Íslend­inga og hægt er að draga úr áhættu með því að aðstoða sjúk­linga við að breyta lífstíl sínum með stuðn­ingi og eftir­fylgni sem og efla forvarn­ir.“

DAVÍÐ O. ARNAR, YFIR­LÆKNIR HJARTA­LÆKN­INGA Á LAND­SPÍT­ALA: 

„Þetta er mjög mikil­vægur styrkur og gerir okkur kleift að halda áfram að þróa og rann­saka nýjar og áhuga­verðar leiðir til að efla þjón­ustuna við hjarta­sjúk­linga. Við leggjum sömu­leiðis mikla áherslu að leita fram­sæk­inna leiða við heilsu­efl­andi aðgerðir á komandi árum. Það er trú okkar að nýjar staf­rænar lausnir, aukin nýting erfð­a­upp­lýs­inga og  betri nýting heil­brigð­is­gagna hafi burði til að valda straum­hvörfum í því hvernig við veitum heil­brigð­is­þjón­ust­u“ .

BYLGJA KÆRNESTED, DEILD­AR­STJÓRI HJARTA­DEILDAR LAND­SPÍT­ALA: 

„Til viðbótar við að efla þjón­ustu við hjarta­sjúk­linga eru með þessum styrk sköpuð mikilvæg tæki­færi til að bæta aðstöðu á deild­inni enn frekar svo og efla starfs­þróun hjá þeim sem starfa á hjarta­deild. Það er afar mikil­vægt þegar gríð­arleg samkeppni er um heil­brigð­is­starfs­fólk, ekki síst hjúkr­un­ar­fræð­ing­a.“ 

Fréttasafn
Deila frétt