Fréttasafn

|

14.12.2022

Tími ljóss og samveru

Aðventan og jólin eru án efa sá tími árs þar sem kerti eru mest notuð á heim­ilum. Því miður getur þeim fylgt bruna­hætta og sýnir tölfræði okkar að desember er hættu­leg­asti tími ársins hvað það varðar.

Við hvetjum alla til að fara með gát og bendum á að LED kerti eru mörg hver ótrú­lega falleg og með tímastilli sem kveikir og slekkur sjálf­krafa á kert­inu.

Ef lifandi kerti eru notuð er gott að hafa í huga að:

  • Hafa logandi kerti ekki í mann­lausu rými.

  • Hafa undir­stöðu trausta og láta skraut ekki liggja að kerti.

  • Hafa a.m.k. 10 sm á milli kerta.

  • Kviknað getur í kertum sem eru húðuð að utan.

  • Kerti með kveik sem nær ekki alla leið niður eru öruggari

  • Setja útikerti ekki beint á timb­ur­pall eða í gang­veg.

Látum stress og álag ekki ná okkur. Njótum frekar samveru með fjöl­skyldu og vinum en gleymum okkur samt ekki við elda­mennskuna þar sem bruni út frá elda­mennsku gleður engan.

Ef það vantar reyk­skynj­ara, eldvarna­teppi eða slökkvi­tæki inn á heim­ilið þá getur það verið tilvalin jóla­gjöf. Viðskipta­vinir VÍS fá afslátt af slíkum örygg­is­vörum hjá samstarfs­að­ilum okkar. Þú getur virkjað afslætti í VÍS appinu.

Fréttasafn
Deila frétt