Fréttasafn

|

17.01.2022

Tilnefn­ing­ar­nefnd VÍS óskar eftir fram­boðum til stjórnar

Tilnefn­ing­ar­nefnd VÍS auglýsir eftir fram­boðum eða tilnefn­ingum til stjórnar VÍS vegna aðal­fundar félagsins sem haldinn verður fimmtu­daginn 17. mars 2022.

Frestur til að skila inn fram­boðum og tilnefn­ingum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefn­ing­ar­nefndar er til föstu­dagsins 4. febrúar 2022.

Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðu­blaði sem unnt er að nálgast hér og á vefsvæði tilnefn­ing­ar­nefndar á heima­síðu VÍS. Útfylltum eyðu­blöðum skal skila á netfangið: tilnefn­ing­ar­nefnd@vis.is. 

Almennur fram­boðs­frestur til stjórnar samkvæmt samþykktum VÍS er fimm dögum fyrir aðal­fund. Starf­semi tilnefn­ing­ar­nefndar takmarkar ekki heimild fram­bjóð­enda til að skila inn fram­boðum til stjórnar allt fram að því tíma­marki, en um þau framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefn­ing­ar­nefnd­ar.  

Rökstudd tillaga tilnefn­ing­ar­nefndar um bestu samsetn­ingu stjórnar verður birt samhliða aðal­fund­ar­boði.

Hægt er að koma ábend­ingum er varða störf nefnd­ar­innar á fram­færi með því að senda tölvu­póst á tilnefn­ing­ar­nefnd@vis.is, einnig er hægt að bóka fund með nefnd­inni sé þess óskað til að koma ábend­ingum á fram­færi.

Nánari upplýs­ingar um tilnefn­ing­ar­nefnd VÍS.

Fréttasafn
Deila frétt