Sýningin Íslenskur landbúnaður í Höllinni um helgina
Sýningin Íslenskur landbúnaður 2022 verður haldin í Laugardalshöllinni núna um helgina 14.-16. október og verðum við með bás á staðnum.
Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytni í landbúnaði og hreinleika íslenskrar matvælaframleiðslu.
Sýningin er jafnframt öflugur kynningarvettvangur þjónustufyrirtækja í landbúnaði og geta bændur og aðrir gestir kynnt sér það nýjasta í tækjum og hvers kyns rekstrarvörum fyrir landbúnaðinn.
Við leggjum áherslu á að bændur séu rétt tryggðir með þá fjölbreyttu starfsemi sem er í sveitum og verðum á staðnum og tökum vel á móti öllum í bás B26. Kíktu endilega á okkur ef þú vilt fara yfir þínar tryggingar, taka þátt í lukkuleik sem við verðum með eða bara til að kasta á okkur kveðju.
Sýningin verður opin sem hér segir:
- Föstudagur: 14. október, kl. 14-19
- Laugardagur: 15. október, kl. 10-18
- Sunnudagur: 16. október, kl. 10-17
Hlökkum til að sjá ykkur!