Fréttasafn

|

18.08.2022

Skólar að hefjast

Nú eru skól­arnir að byrja og ungt fólk í umferð­inni. Tími sem ökumenn þurfa að vera á tánum. Vera meðvit­aðir um að það geta verið nýliðar á ferð­inni, einstak­lingar sem eru ekki endi­lega með hugann við umferðina og geta tekið óvæntar og ófyr­ir­séðar ákvarð­anir.

Við hvetjum foreldra líka til að ræða við börn sín um öryggi þeirra á leið­inni í skól­ann. Það er ýmis­legt sem gott er að fara yfir og ferða­mátinn getur verið mismun­andi. Hvort sem börnin ferðast á hjóli, vespu, hlaupa­hjóli, labb­andi eða í bíl.

Nokkur atriði sem gott er að fara yfir:

  • Hjálmur notaður og hann rétt stilltur.

  • Gengið frá hjóli/hlaupa­hjóli/vespu á öruggan hátt.

  • Sýni­leiki tryggður með endur­skini og/eða ljósum.  

  • Örugg­asta leiðin í skólann valin með áherslu á þverun gatna.   

  • Vera viss um að aðrir vegfar­endur viti af þeim þegar farið er yfir götu.

  • Réttur örygg­is­bún­aður í bílnum miðað við aldur.

  • Að heyrn­artól taki ekki athyglina frá umferð­inni.

  • Að alltaf eigi að fara eftir umferð­ar­reglum, en ekki bara þegar hentar.

Fréttasafn
Deila frétt