Fréttasafn

|

01.11.2022

Skautum ekki inn í vetur­inn!

Góð dekk eru einn af mikil­væg­ustu örygg­is­þáttum ökutækja.

Það er eina vitið að rúlla inn í veturinn á góðum dekkjum. Góð dekk eru einn af mikil­væg­ustu örygg­is­þáttum hvers ökutækis. Þau auka meðal annars stöð­ug­leika, stytta heml­un­ar­vega­lengd, minnka líkur á að bíllinn fljóti upp í bleytu og krapa og eyðsla bílsins verður minni.

Við mælum með að skoða hvort vetr­ar­dekkin séu í lagi fyrir veturinn og kanna:

  • Mynstur­dýptina — en hún á að vera að lágmarki þrír milli­metrar á dekkinu öllu.

  • Loft­þrýst­inginn — en hann þarf að vera réttur og sá sami á öllum dekkjum.

  • Þrífa dekkin með dekkja­hreinsi til þess að fjar­lægja tjöru.

Ef þú þarft að endur­nýja dekkin þá veita Sóln­ing, Harð­korna­dekk og Betra grip viðskipta­vinum okkar sem eru í Vild­ar­kerfi VÍS afslátt. Upplýs­ingar um afslætti getur þú skoðað í nýja VÍS appinu okkar en þú getur sótt appið fyrir Android hér og fyrir iOS hér.

Förum varlega í vetur.

Fréttasafn
Deila frétt