Fréttasafn

|

14.01.2022

Saman leysum við málið

Vegna samkomutak­markana og aukn­ingu á kórónu­veiru­smitum höfum við ákveðið að loka þjón­ustu­skrif­stofum okkar og tjóna­skoð­un­ar­stöð­inni á Smiðs­höfða tíma­bundið frá og með mánu­deg­inum 17. janúar.

Við hvetjum þig til þess að að heyra í okkur símleiðis eða í gegnum netspjallið. Saman leysum við málið, fljótt og vel.

Skráðu þig inn endi­lega á vefinn okkar en þar er hægt að tilkynna tjón, fá yfirlit yfir trygg­ingar, greiðslu­stöðu og breyta greiðslu­upp­lýs­ingum. Við hvetjum þig til þess að nýta staf­rænu lausn­irnar okkar, þegar þér hentar.

Hafðu endi­lega sam­band við okk­ur ef við get­um aðstoðað þig. ­Sendu okkur tölvu­póst á vis@vis.is. Svo er auðvitað hægt að hafa samband við okkur í síma 560 5000.

Starfs­fólk VÍS

Fréttasafn
Deila frétt