Fréttasafn

|

27.04.2022

Nýtt skipurit hjá VÍS

Breyt­ingar hafa verið gerðar á skipu­riti félags­ins.

VÍS er staf­rænt þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem breytir því hvernig trygg­ingar virka. VÍS hefur skipað sér í fremstu röð trygg­inga­fé­laga á Íslandi, með þróun sjálf­virkra þjón­ustu­ferla og staf­rænna lausna. Áherslan fram á veg verður á sókn og sölu. Til þess að endur­spegla þessa áherslu hafa verið gerðar eftir­far­andi skipu­lags­breyt­ingar hjá félag­inu.

Þjón­usta, sala og mark­aðsmál verða nú sameinuð undir nýtt svið sem nefnist sala og þjón­usta. Fram­kvæmda­stjóri sviðsins verður Guðný Helga Herberts­dóttir. Staf­rænar lausnir færast yfir til kjarn­a­starf­semi sem fram­vegis nefnist kjarni og staf­rænar lausnir. Fram­kvæmda­stjóri sviðsins verður Birkir Jóhanns­son. Við þessar breyt­ingar hefur Hafdís Hans­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu, ákveðið að láta af störfum.

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS:

„Að umbreyta aldar­gömlu trygg­inga­fé­lagi í staf­rænt þjón­ustu­fyr­ir­tæki kallar á sífelldar breyt­ingar, ekki síst á skipu­lagi félags­ins. Vegferðin og mark­miðin eru skýr. Ég vil þakka Hafdísi fyrir frábært samstarf og ómet­an­legt framlag til félagsins undan­farin ár.“

Samhliða þessum skipu­lags­breyt­ingum láta níu starfs­menn af störfum. Fram­kvæmda­stjórn félagsins skipa nú Helgi Bjarna­son, Guðný Helga Herberts­dóttir, Birkir Jóhannsson og Anna Rós Ívars­dóttir, mannauðs­stjóri. Breyt­ing­arnar taka gildi þegar í stað.

Fréttasafn
Deila frétt