Fréttasafn

|

13.12.2022

Mætum frostinu af öryggi

Samkvæmt veður­spám verður áfram frost næstu daga og viljum við benda þér á að við þessar veður­að­stæður aukast líkur á að frjósi í lögnum sumar­húsa og þær gefi sig í kjöl­farið.

Snjó­laus jörð eins og nú er ýtir enn frekar undir það. Oft fer svo ekki að leka fyrr en hlýnar í veðri á ný og uppgötvast ekki fyrr en of seint.

Við hvetjum alla sem ekki hafa gengið frá óupp­hit­uðum húsum sínum fyrir veturinn að gera það. Þeir sem eru með upphituð hús ættu einnig að kíkja við og kanna hvort að:

  • Hiti sé þokka­legur á húsi.

  • Nægt rennsli á vatni.

  • Þrýst­ingur eðli­legur á mæli lagna­grindar.

Ef allt er í góðu er gott að skilja vaska­skápa eftir opna, sérstak­lega þá sem eru á útvegg, skrúfa fyrir neyslu­vatn og tæma lagnir þegar hús er yfir­gefið.

Er ekki nægur hiti eða rennsli?

Ef eitt­hvað er ekki eins og á að vera er mikil­vægt að finna rót vand­ans. Hafi kalda vatnið frosið getur hjálpað að láta heita vatnið renna í einhvern tíma. Ef það hjálpar ekki þarf að finna út hvar hefur frosið og hita upp það svæði. Gangi ekki að koma vatni aftur á verður að skrúfa fyrir neyslu­vatnið áður en húsið er yfir­gefið, heyra í pípara og kíkja svo við þegar hlýnar í veðri á ný 👩🏼‍🔧

 

Fréttasafn
Deila frétt