Fréttasafn

|

29.12.2022

Kveðjum árið örugg

Flug­eldar hafa lengi verið órjúf­an­legur hluti áramóta okkar. Þeir gleðja augað en mikil­vægt er að fara varlega og umgangast þá að virð­ing­u.  

Munum að það er ekki sniðugt að fikta með flug­elda og við ættum aldrei að gera slíkt.  

Förum varlega með flug­eldana og höfum eftir­far­andi í huga: 

  • Lesum leið­bein­ingar og fylgjum þeim. 

  • Virðum aldurs­mörk og pössum upp á börn­in. 

  • Munum að áfengi og flug­eldar eiga aldrei samleið. 

  • Gæta að dýrum. Höfum þau innan­dyra með kveikt á tónlist og ljós­um. 

  • Notum öll örygg­is­gler­augu. 

  • Notum ullar- eða skinn­hanska, líka ef á bara að halda á blysi. 

  • Virðum fjar­lægð­ar­mörk frá skot­stað, a.m.k. 20 metra. 

  • Geymum flug­elda fjarri skot­stað.  

  • Notum traustar undir­stöður og slétt undirlag fyrir stand­blys og skot­kök­ur. 

  • Ef skot­kaka er í kassa, skerum flipa kassans af áður en skotið er. 

  • Kveikjum í með útréttri hendi og víkjum strax frá. 

  • Ef flug­eldar virka ekki sem skyldi. Látum þá vera í nokkrar mínútur og hellum síðan vatni yfir.

Njótum áramót­anna og stækkum það góða og jákvæða í kringum okkur með því að setja athyglina á það. Með ósk um gott og heilla­ríkt ár.

Fréttasafn
Deila frétt