Fréttasafn

|

10.10.2022

HS Veitur bæta tjónið

Bilun varð í tengi­kassa HS Veitna í Urriða­holti í Garðabæ þann 23. sept­ember síðast­liðinn með þeim afleið­ingum að of mikil spenna fór í nærliggj­andi fast­eignir og olli tjóni á raftækjum.

Samkvæmt íslenskum lögum ber fólk skaða­bóta­ábyrgð á tjóni sem það veldur öðrum með saknæmum og ólög­mætum hætti. Skil­yrði þess að tjónið teljist bóta­skylt er þannig að sýnt sé fram á að tjónið verði rakið til saknæmrar vanrækslu HS Veitna eða starfs­manna þeirra.  

Orsakir bilun­ar­innar hafa nú verið kann­aðar og er ekkert sem bendir til þess að frágangur og vinnu­brögð HS Veitna hafi verið ófull­nægj­andi eða í einhverju ósam­ræmi við reglur og staðla. Tjónið er því ekki bóta­skylt úr ábyrgð­ar­trygg­ingu HS Veitna. 

Stjórn HS Veitna hefur hins vegar ákveðið að bæta tjón þeirra viðskipta­vina sem urðu fyrir tjóni vegna spennu­breyt­ingar, án viður­kenn­ingar á bóta­skyldu. 

Þeir viðskipta­vinir sem hafa nú þegar tilkynnt tjónið til VÍS verða greiddar bætur á næstu dögum skv. mati fagað­ila. 

  • Næsta skref hjá tjón­þolum er að panta heim­sókn frá rafeinda­virkja sem myndi meta tjón­ið.  

  • Heim­sóknin er pöntuð á heima­síðu rafbraut.is  og mæta rafeinda­virkjar eftir kl. 17.   

Kostn­aður vegna tjóna­mats verður greiddur af HS Veitum.    

VÍS mun sjá um tjóna­upp­gjör við alla tjón­þola fyrir hönd HS Veitna. Við hvetjum ykkur til að hafa samband á tjon@vis.is eða í síma 560 5000 ef einhverjar spurn­ingar vakna. 

Fréttasafn
Deila frétt