Fréttasafn

|

15.08.2022

HEY! Góða ferð

Í sumar fengum við nokkra bændur með okkur í lið og báðum þá að merkja heyrúll­urnar sínar með skemmti­legum skila­boðum.

Heyrúll­unum var svo komið fyrir nálægt þjóð­vegi 1 til að skila­boðin næðu til sem flestra.

Þetta heppn­aðist ljóm­andi vel og vonandi fóru þessi góðu skilaboð ekki fram hjá ferða­löngum.

Þeir sem hafa ekki séð þessi skilaboð þurfa ekki að örvænta því að þau munu standa alla­vega út mánuð­inn. Bara keyra hringinn og njóta!

 

Fréttasafn
Deila frétt