Fréttasafn

|

29.06.2022

Er skemmti­leg­asta helgi sumarsins fram undan?

Versl­un­ar­manna­helgin er fram undan með öllum þeim skemmt­unum sem eru í boði. Helgi þar sem vinir koma saman og gleðj­ast. Höfum gaman og pössum upp á hvert annað.

Það er svo dásam­legt að ferðast um landið okkar en ábyrgð ökumanna er mikil. Stóra verk­efnið er umferðarör­yggi og að fækka slysum og tjónum. Til þess að það gangi upp verður hver og einn að vilja leggja sig fram, en of mikill hraði, ölvun, skortur á athygli og þreyta eru svo sann­ar­lega ekki vinir umferðarör­yggis.

Við hvetjum alla til að njóta helgar­innar og fara með gát, það marg­borgar sig. Höldum áfram á þeirri braut að versl­un­ar­manna­helgin gangi stór­áfalla­laus fyrir sig. Það er engum öðru að þakka en okkur sjálfum.

Höfum þetta í huga:

1.       Vera úthvíldur þegar lagt er af stað.  

2.      Skoða veðurspá fyrir brott­för.

3.      Vera viss um að bíllinn og annar búnaður sé í lagi.

4.      Vera með fulla athygli við akst­ur­inn.

5.      Festa farang­urinn og aðra lausa­muni.

6.      Vera viss um að allir séu spenntir í belti og börnin í barna­bíl­stólum.

7.      Taka mið af aðstæðum og virða hámarks­hraða.

8.      Passa uppá bilið við næsta bíl.

9.      Taka ekki fram úr nema aðstæður séu öruggar.

10.   Aka ekki undir áhrifum áfengis eða vímu­efna.

Fréttasafn
Deila frétt