Fréttasafn
|21.09.2022
Er allt klárt fyrir veturinn?
Mikilvægt er að ganga vel frá eftirvagni fyrir vetrargeymsluna til að ekkert skemmist eða fari illa yfir veturinn.

Hvað þarf að gera áður en hjólhýsið fer inn í vetrargeymslu?
Tæma allar vatnslagnir, bæði neysluvatn og salerni
Skilja krana eftir opna
Taka allan mat úr vagninum sem getur skemmst
Láta dýnur standa upp á rönd
Draga fyrir glugga
Hafa skápahurðar opnar
Láta ísskáp og frystihólf standa opið
Fjarlægja rafgeymi og hlaða hann annan hvern mánuð eða setja hann í vaktara
Taka sólarsellu úr sambandi
Aftengja gaskúta
En fellihýsið?
Tæma allar vatnslagnir
Skilja krana eftir opna
Taka allan mat úr vagninum sem getur skemmst
Þrífa ísskáp vel
Ef sólarsella er til staðar aftengja hana
Fjarlægja rafgeymi og hlaða hann annan hvern mánuð eða setja hann í vaktara
Aftengja gaskúta
Hvað með tryggingar?
Við mælum með því að húsvagnatrygging okkar sé til staðar yfir allt árið. Með henni er vagninn er tryggður fyrir næstum öllum skyndilegum og utanaðkomandi atvikum í geymslunni eins og þegar eitthvað dettur á vagninn, einhver keyrir utan í hann, kviknar í, vatn lekur í geymslunni, einhver brýst inn í vagninn, foktjón verður á geymslu og hrynur á vagninn en ef hann er geymdur úti þá eru foktjón undanskilin frá 1. okt til 30. apríl.