Fréttasafn

|

29.06.2022

Ekki láta mig trufla þig!

Ein stærsta ferða­manna­helgi ársins er fram undan og eflaust erum við öll sammála um að það sé fullt starf að keyra bíl.

Samt er svo ótrú­lega margt sem getur dregið athygli okkar frá akstr­inum. Síminn, útvarpið, farþegar og umhverfið eru án efa ofar­lega þar á lista. Sumt af þessu tökum við ákvörðun um að sinna ekki en annað er erfiðara við að eiga og eftir því sem hraðar er ekið og þreyttari við erum minnkar geta okkar til að taka eftir því sem í umhverfinu er.

Það er eina vitið að byrja ferða­lagið vel úthvíld, virða hámarks­hraða, tryggja að allir séu í örygg­is­búnaði og með höfuð­púðana rétt stillta, taka ekki fram úr nema góð sýn sé fram á við og láta það ekki pirra okkur ef umferðin gengur hægt.

Njótum þess að ferðast og eigum ljúfar stundir á veginum.

Fréttasafn
Deila frétt