Fréttasafn

|

03.08.2022

Á að fara að gosstöðv­unum?

Búast má við að margir leggi leið sína næstu daga að gosstöðv­unum. Við hvetjum alla til að fara eftir útgefnum ráðlegg­ingum.

Ef leggja á í hann er mikil­vægt að huga vel að útbún­aði, gæta að hugs­an­legri gasmengun, skoða veðurspá og láta vita af ferðum sínum. Útbún­aður sem getur komið að góðum notum er:

  • Góðir göngu­skór

  • Hlýjan fatnað og helst ekki minna en tvö lög

  • Húfa

  • Vett­linga

  • Vind- og vatns­helda skel

  • Bakpoka

  • Nesti

  • Heitt og kalt vatn

  • Full­hlaðinn síma og hleðslu­banka

  • Göngustafi

  • Höfuð­ljós

Við hvetjum alla til að fara með varlega og muna að kapp er best með forsjá.

Fréttasafn
Deila frétt