Fréttasafn

|

18.05.2021

„Við viljum vera til fyrir­myndar"

VÍS er eitt af fyrir­mynd­ar­fyr­ir­tækjum VR ársins 2021.

VÍS er eitt af fyrir­mynd­ar­fyr­ir­tækjum VR ársins 2021. VÍS tilheyrir hópi stórra fyrir­tækja með 70 starfs­menn eða fleiri.  Fimmtán efstu sætin í hverjum stærð­ar­flokki fá viður­kenn­inguna Fyrir­mynd­ar­fyr­ir­tæki og er VÍS eitt þeirra. 

Þetta er í þriðja skiptið sem VÍS fær viður­kenn­ingu sem Fyrir­mynd­ar­fyr­ir­tæki VR en á síðasta ári fékk félagið jafn­fram nafn­bótina Fyrir­tæki ársins, en þá var félagið í einu af fimm efstu sætunum. Anna Rós Ívars­dóttir, mannauðs­stjóri VÍS, er ánægð með viður­kenn­ing­una. „Við erum gríð­ar­lega stolt af þessum árangri því við viljum vera til fyrir­myndar. VÍS er framúrsk­ar­andi vinnu­staður og það er gott að fá stað­fest­ingu á því."

Þess má geta að niður­staðan byggir á könnun sem send er á alla félags­menn VR og þúsundir annarra starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði. Könn­unin er ein viða­mesta vinnu­mark­aðs­könnun sem gerð er hér á landi.

Fréttasafn
Deila frétt