Fréttasafn

|

28.01.2021

Keppt um VÍS BIKAR­INN!

VÍS er nýr bakhjarl Körfu­boltaknatt­leiks­sam­bands Íslands (KKÍ).

Þrátt fyrir óvissu vegna alheims­far­ald­ursins er það gleði­efni að framundan sé  bikar­keppni KKÍ en þá verður barist um VÍS BIKAR­INN. Því er ljóst að körfu­boltinn verður rauðari en hann hefur nokkurn tímann verið!

 

Körfu­bolti frábær forvörn

Þetta er í fyrsta skipti sem VÍS styður við KKÍ með þessum hætti. KKÍ hefur unnið frábært starf undan­farin ár og hafa vinsældir körfu­boltans aukist jafnt og þétt. Ljóst er að mikil samlegð er í áherslum KKÍ og VÍS í lýðheilsu. VÍS beinir því spjót­unum að forvörnum, samfé­laginu til heilla ─ en íþróttir eru frábær forvörn, fyrir líf og sál.

„Stuðn­ingur fyrir­tækj­anna í landinu er okkur afar mikil­vægur svo hægt sé að halda úti öflugu starfi. Við hjá KKÍ erum svo heppin að hafa góðan hóp fyrir­tækja sem samstarfs­aðila og flest þeirra hafa verið í mörg ár með okkur. Núna bætist VÍS við þennan flotta hóp sem er afar ánægju­legt, enda VÍS eitt af öflug­ustu fyrir­tækjum lands­ins. VÍS er nú einn af stóru samstarfs­að­ilum okkar og það verður gaman að sjá nafn VÍS í bikar­keppn­inni! " sagði Hannes Jónsson, formaður KKÍ. Hann sagði jafn­framt að þrátt fyrir það langa stopp sem hefur verið í keppn­is­haldi, þá væri virki­lega jákvætt að VÍS BIKARINN muni fara á loft í vor þegar VÍS bikar­meist­arar karla og kvenna verða krýndir. „Því er mikil tilhlökkun hjá okkur fyrir nýja samstarfinu við VÍS sem má segja að sé  afmæl­is­gjöf til sambandsins ─ en á morgun, föstu­daginn 29. janúar, mun KKÍ fagna 60 ára afmæli sínu.“ sagði Hannes að lokum.

 Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS , er ánægður með samstarfið. „Við erum stolt af samstarfinu og höfum mikla trú á KKÍ sem hefur unnið ötul­lega að því að auka vinsældir þess­arar frábæru íþróttar síðustu ár. Iðkendum hefur fjölgað einna mest í körfu­bolta og er nú næst stærsta boltaí­þróttin á eftir fótbolta.  Við  erum ánægð að geta lagt okkar af mörkum til þess að styrkja enn frekar öflugt starf KKÍ. Hreyfing hefur aldrei verið jafn mikilvæg og nú þegar alheims­far­ald­urinn skekur heims­byggð­ina. Ég er ekki í nokkrum vafa að bikar­keppnin í vor verður æsispenn­andi og það verður gaman að sjá hverjir hljóta VÍS BIKAR­INN!“

Fréttasafn
Deila frétt