Fréttasafn

|

04.05.2021

Viðsnún­ingur í afkomu félagsins

VÍS birti uppgjör fyrsta ársfjórð­ungs 29. apríl sl.

Helstu niður­stöður fyrsta ársfjórð­ungs

  • Hagn­aður tíma­bilsins eftir skatta var 1.904 millj­ónir kr. saman­borið við tap upp á 1.963 millj­ónir kr. á sama tíma­bili 2020

  • Afkoma af vátrygg­ing­a­rekstri tíma­bilsins var neikvæð um 405 millj­ónir kr. saman­borið við 1.410 milljóna kr. neikvæða afkomu á sama tíma í fyrra

  • Samsett hlut­fall fjórð­ungsins var 108% en var 126,5% á sama tíma í fyrra

  • Iðgjöld tíma­bilsins voru 5.520 millj­ónir kr. í saman­burði við 5.558 millj­ónir kr. á 1F 2020

  • Tekjur af fjár­fest­inga­starf­semi voru 2.484 millj­ónir kr. en voru neikvæðar um 162 millj­ónir kr. á sama tíma­bili 2020

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS:

„Árið 2021 fór vel af stað í fjár­fest­ing­unum ─ en árang­urinn í fjórð­ungnum er sá annar besti frá skrán­ingu félags­ins. Fjár­fest­inga­tekjur ársfjórð­ungsins námu 2,5 millj­örðum króna eða 5,8% nafnávöxtun yfir tíma­bilið. Gott gengi skráðra hluta­bréfa skýra stærstan hluta góðrar afkomu en hluta­bréfa­safn félagsins hækkaði um 17,6%.  Fjár­fest­inga­eignir í lok fjórð­ungsins voru 42 millj­arðar króna. Ég er stoltur af góðri afkomu á fjórð­ungnum ─ en arðsemi eigin fjár á ársgrund­velli er langt umfram markmið félags­ins.

Hagn­aður fyrsta ársfjórð­ungs 2021 var 1,9 millj­arður króna sem er viðsnún­ingur um tæpa fjóra millj­arða borið saman við fyrsta ársfjórðung síðasta árs.

Almennt og yfir­leitt eru fyrstu þrír mánuðir ársins í trygg­ing­a­rekstri tjóna­þungir ─ en gott tíðarfar og jákvæð áhrif farald­ursins settu sitt mark á fjórð­ung­inn. Þó hafa einstaka tjónsat­burðir neikvæð áhrif á fjórð­unginn sem gerir það að verkum að samsett hlut­fall fjórð­ungsins er 108%. Á sama tíma­bili í fyrra var samsetta hlut­fallið 126,5% ─ sem skýrðist þá að mestu leyti af styrk­ingu tjóna­skuldar.

Mikil­vægar vörður í vegferð félagsins

Við héldum áfram þeirri mikil­vægu vinnu að marka skýra sýn og stefnu með stjórn­endum félags­ins. Við fórum yfir nýjar áherslur og mark­mið. Við vitum hvert við ætlum og hvernig ─ sem er mikil­vægt leið­ar­ljós til fram­tíðar.

Við höldum áfram að þróa staf­rænu ferlana sem við höfum nú þegar kynnt til sögunnar ─ og auka það hlut­fall sem fer í sjálf­virka afgreiðslu. Allt er þetta gert til þess að einfalda viðskipta­vinum okkar lífið. Við vitum hvað tíminn er dýrmætur. Í upphafi árs kynntum við stolt til sögunnar Ökuvísi sem er bylt­ing­ar­kennd nýjung á íslenskum trygg­inga­mark­aði. Appinu hefur verið vel tekið og var vinsæl­asta appið á Íslandi þegar það kom út. Við erum nú á hraðri leið í átt að fram­tíð­ar­sýn­inni að vera staf­rænt þjón­ustu­fyr­ir­tæki ─ og Ökuvísir er mikilvæg varða á þeirri leið.

Við höfum sagt það áður en við ætlum að breyta því hvernig trygg­ingar virka. Það þýðir að við hugsum trygg­ing­arnar upp á nýtt og höfum hugrekki til þess að breyta. Næsta varða á staf­rænu vegferð­inni okkar er breyta kaup­ferli líf- og sjúk­dóma­trygg­inga. Verk­efnið er hafið og munum sem fyrr leita til viðskipta­vina við þróun og hönnun á þessari nýju lausn. Við hlökkum til að segja nánar frá því.“

Nánari upplýs­ingar um uppgjör fyrsta ársfjórð­ungs má finna hér.

Fréttasafn
Deila frétt