Fréttasafn

|

08.11.2021

Viðskipta­vinir okkar velja öryggi!

Ánægju­legt að sjá að viðskipta­vinir VÍS láta öryggið passa.

Í nýlegri könnun sem Prósent fram­kvæmdi fyrir VÍS kemur fram að viðskipta­vinir okkar láta öryggið passa. Í könn­un­inni kemur fram að 96% viðskipta­vina okkar nota reyk­skynj­ara, 82% þeirra nota slökkvi­tæki og 69% eldvarn­arteppi. Við erum í skýj­unum með þessa niður­stöðu! Við erum stolt af því að viðskipta­vinir okkar séu með hærra meðaltal en viðskipta­vinir annarra trygg­inga­fé­laga — enda er markmið okkar að viðskipta­vinir okkar lendi sjaldnar í tjóni.

Í herferð­inni okkar um örygg­is­vörur er hugmyndin einmitt að sýna fram á mikil­vægi þess að láta öryggi passa. Í auglýs­ing­unni fer Ingvar E. Sigurðs­son, leik­ari, á kostum þar sem hann flakkar á milli veislna og gefur fallegar örygg­is­vörur. Markmið herferð­ar­innar er að vekja athygli á úrvali fallegra örygg­is­vara sem gaman er að gefa — og gaman er að hafa til sýnis. Þessi mikil­vægu tæki gera nefni­lega lítið gagn ofan í skúffu.

Fréttasafn
Deila frétt