Fréttasafn

|

17.05.2021

Veistu hvað ungmenni mega bera þunga poka?

Nýlega tóku nokkur hress ungmenni í grunn­skóla Grund­ar­fjarð­ar­bæjar þátt í örygg­is­nám­skeiði fyrir vinnu­skóla sveit­ar­fé­lags­ins.

Námskeiðið er afrakstur forvarn­ar­sam­starfs VÍS, Vinnu­vernd­ar­skóla Íslands og Grund­ar­fjarð­ar­bæjar. Þetta er sann­kallað braut­ryðj­endastarf þar sem kast­ljósinu er beint að vinnu­verndar- og örygg­is­málum hjá ungu fólki, til dæmis slysa­varnir, notkun persónu­hlífa, líkams­beit­ingu og vellíðan í vinnu.

Niðursokkin ungmenni í öryggisnámskeiðinu.

Þetta er sjálfsnám fyrir ungmenni sem eru fara hefja sumarstarf í vinnu­skóla sveit­ar­fé­lags­ins. Námskeiðið fór að mestu leiti fram á netinu gegnum spjald­tölvur og snjallsíma. Ungmennin voru einbeitt á námskeiðinu í snjall­tækj­unum sínum og tóku allir námið á sínum hraða.

Mikil ánægja var með námskeiðið og ljóst er að ungmenninn eru vel undir­búin fyrir störfin framundan í vinnu­skóla Grund­ar­fjarð­ar­bæjar.

Fréttasafn
Deila frétt