Fréttasafn

|

22.10.2021

Uppgjör þriðja ársfjórð­ungs 2021

Árshluta­reikn­ingur félags­ins ­fyrir fyrst­u n­íu ­mánuði ársins 2021 var stað­festur af stjórn og forstjóra á stjórn­ar­fundi þann 21. októ­ber 2021.  

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS
Helstu niður­stöð­ur 3F 2021 
  • Hagn­aður fjórð­ungsins var 2,2 millj­arð­ar ­sam­an­borið við 1,0 millj­arð á sama tíma í fyrra. 

  • Hagn­aður af vátrygg­ing­a­rekstri í fjórð­ungnum var 628 millj­ón­ir ­sam­an­borið við 358 millj­ón­a hagn­að á sama tíma­bili 2020. 

  • Samsett hlut­fall fjórð­ungsins var 90,5% en var 94,5% á sama tíma í fyrra. 

  • Iðgjöld tíma­bilsins voru 5.955 millj­ónir í saman­burði við 5.735 millj­ón­ir á sama tíma í fyrra. 

  • Tekjur af fjár­fest­ing­ar­starf­semi voru 2,0 millj­arð­ar en var 1,1 millj­arð­ur á sama tíma­bili 2020. 

Helstu niður­stöður 9M 2021 
  • Hagn­að­ur ­fyrstu níu mánuði ársins var 6,7 millj­arðar en á sama tíma í fyrra var tap upp á 15 millj­ón­ir. 

  • Hagn­aður af vátrygg­ing­a­rekstri fyrir tíma­bilið var 543 millj­ón­ir ­sam­an­borið við 1.210 millj­ón­a tap árið áður. 

  • Samsett hlut­fall fyrstu níu mánuði ársins er 97,7% en var 108,0% á sama tíma­bili í fyrra. 

  • Tekjur af fjár­fest­ing­ar­starf­semi á fyrstu níu mánuðum ársins ­nem­a 7,1 millj­arð­i en námu 2,6 millj­örð­um árið áður. 

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS: 

„Fjórð­ung­urinn var góður, með tilliti til fjár­fest­inga og trygg­ing­a. Hagn­að­ur fjórð­ungs­ins nam 2,2 millj­örð­um krón­a. Af­koman fyrir fyrstu níu mánuði ársins er 6,7 millj­arð­ar ─ sem er mikill viðsnún­ingur frá því í fyrra. Af­koma af trygg­ing­a­rekstr­inum á fjórð­ungn­um nam 628 millj­ón­um og er í takt við vænt­ingar okkar. Tjóna­hlut­fall fjórð­ungsins var 68,6% og hefur ekki verið lægra í þrjú ár. ­Sam­sett hlut­fall fjórð­ungsins var 90,5% en var 94,5% á sama tíma í fyrra. ­Gefin var út afkomuspá í byrjun árs sem er enn í gild­i ─ og áfram er ­gert ráð fyrir­ ­að ­sam­sett hlut­fall ársins verði á bilin­u 97-99%.   

Góð ávöxtun hluta­bréfa 

Fjár­fest­ing­ar­tekjur í fjórð­ungnum námu t­veimur millj­örðum sem ­jafn­gild­ir 4,5% ­nafnávöxt­un. Fjár­fest­ing­ar­tekjur frá áramót­um ­nem­a sjö millj­örð­um og er ­nafnávöxt­unin 16,2%. Stærsti hluti fjár­fest­ing­ar­tekna í fjórð­ungn­um er af hluta­bréf­um eð­a um 1,7 millj­arð­ar. Fjár­fest­ing­ar­eignir félags­ins hafa aldrei verið meiri og nema nú 46 millj­örðum krón­a.  

 

Einfald­lega betri trygg­ingar 

Á fjórð­ungnum kynntum við til sögunn­ar ­nýtt og stór­bætt ­kaup­ferli líf- og sjúk­dóma­trygg­ing­a. Þetta er sta­f­rænt ferli frá upp­hafi til enda ─ þar sem upp­lifun viðskipta­vin­a og sjálf­virkni leika aðal­hlut­verk. Nú er hægt er að ganga frá kaup­unum á ör­fá­um mín­út­um. Ég er virki­leg­a ­stoltur af þeim endur­bættu trygg­ingum sem við höfum kynnt til sögunnar á árin­u. Öku­vís­ir er nýjung í ökutækja­trygg­ing­um en fjöl­margir viðskipta­vina okkar borg­a ­lægra verð ­vegna þess að þeir keyra betur. Við teljum okkur líka bjóða upp á þá ­bestu kaskó­trygg­ingu sem völ er á hér á land­i ─ því hún er með víðtæk­ustu vernd­in­a. Þetta eru einfald­lega betri trygg­ing­ar.  

Jafn­rétti er ákvörðun 

Við erum stolt af því að hafa náð að út­rýma ­launamun kynj­ann­a hjá félag­in­u. Allt frá því ­að við settum jafn­rétt­is­málin á oddinn ­fyrir tæpum 20 árum hef­ur hver áfanga­sig­urinn unnist. Við vorum í hópi þeirra fyrir­tækja sem fyrst fengu jafn­launa­vott­un ­fyr­ir­ fjór­um árum eða í lok árs 2017 ─ og í sam­ræmi við vott­unina hefur ­launamun­ur ver­ið óveru­legur og innan viðmið­un­ar­marka. Nú höfum við ­náð þeim ­mik­il­væg­a áfanga að ekki ­mæl­ist ­launamun­ur hjá félag­inu. Þetta er afrakst­ur margra ára á­setn­ings um að útrýma launamun kynj­ann­a. Ég er því mjög stoltur af þessum áfang­a.  Við leggjum ríka áherslu á jafn­rétti ─ og má geta þess að hlut­fall fram­kvæmda­stjóra og forstöðu­manna er til helm­ings konur og karlar.“ 

Horfur  

Lang­tíma­markmið félags­ins er að sam­setta hlut­fallið sé ekki hærra en 95% og arðsemi eigin fjár sé að lágmarki 15%. Farið verður yfir samsett hlut­fall hvers ársfjórð­ungs í uppgjörum ásamt stöðu og horfum í rekstri félags­ins.  

Horfur um samsett hlut­fall ársins 2021  

Félagið gerir ráð fyrir að samsett hlut­fall ársins 2021 verði á bilin­u 97-99%.  

 Félagið mun tilkynna ef breyt­ingar verða á horfum ársins um samsett hlut­fall, s.s. vegna stórra tjóna eða ­ann­ars sem hefur umtals­verð áhrif á rekstur félags­ins, svo að verð­mót­andi teljist fyrir hluta­bréf þess.  

Fréttasafn
Deila frétt