Fréttasafn

|

18.01.2021

Tilnefn­ing­ar­nefnd VÍS tekur til starfa

Tilnefn­ing­ar­nefnd VÍS hefur hafið störf í samræmi við samþykktir félagsins og mun hún tilnefna fram­bjóð­endur til setu í stjórn félagsins fyrir stjórn­ar­kjör sem fer fram á aðal­fundi félagsins föstu­daginn 19. mars 2021.

Frestur til að skila inn fram­boðum og tilnefn­ingum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefn­ing­ar­nefndar er til mánu­dagsins 8. febrúar 2021. Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðu­blaði sem unnt er að nálg­ast hér og á vefsvæði tilnefn­ing­ar­nefndar á heima­síðu VÍS. Útfylltum eyðu­blöðum skal skila á netfang­ið: tilnefn­ing­ar­nefnd@vis.is.

Almennur fram­boðs­frestur til stjórnar samkvæmt samþykktum VÍS er fimm dögum fyrir aðal­fund. Starf­semi tilnefn­ing­ar­nefndar takmarkar ekki heimild fram­bjóð­enda til að skila inn fram­boðum til stjórnar allt fram að því tíma­marki, en um þau framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefn­ing­ar­nefndar.

Rökstudd tillaga tilnefn­ing­ar­nefndar um bestu samsetn­ingu stjórnar verður birt samhliða aðal­fund­ar­boði

Hægt er að koma þessum ábend­ingum sem og öðrum ábend­ingum um störf nefnd­ar­innar á fram­færi með því að senda tölvu­póst á tilnefn­ing­ar­nefnd@vis.is, einnig er hægt að bóka fund með nefnd­inni sé þess óskað til að koma ábend­ingum á fram­færi.

Nánari upplýs­ingar um tilnefn­ing­ar­nefnd VÍS.

Fréttasafn
Deila frétt