Fréttasafn

|

28.07.2021

Þér kann að vera hætta búin

Notkun svefn- og slævandi lyfja er tals­vert mikil hér á landi og talið er að yfir 30.000 einstak­lingar fái ávísað slíkum lyfjum árlega.

Margir nota lyfin að stað­aldri, en talað er um að þau eigi aðeins að nota í 2-4 vikur í senn, og þurfa svo með tímanum stærri skammta vegna þolmynd­unar.

Tölu­legar upplýs­ingar um hversu mörg slys verða árlega vegna notk­unar þessara lyfja eru ekki til hérlendis. Ekki er þó ástæða til að halda að þau séu færri hér á landi en víða erlendis en talað er um að þau valdi jafnvel fleiri slysum í umferð­inni en neysla áfengis. Í rann­sókn sem gerð var hér á landi kom í ljós að þeir sem nota svefn- og slævandi lyf er 40% hættara við bein­brotum vegna byltna og annarra slysa.

Í bæklingnum Þér kann að vera hætta búin er farið yfir áhrif sem svefn- og slævandi lyf geta haft á einstak­linga sem þau taka. Við hvetjum alla sem taka slík lyf að skoða bækling­inn, kanna þekk­ingu sína á þeim áhrifum sem lyfin kunna að valda og hvaða leiðir eru aðrar færar en notkun lyfj­anna og draga þannig mögu­lega úr slysum.

Fréttasafn
Deila frétt