Fréttasafn

|

03.06.2021

„Takk fyrir að hjálpa okkur að hjálpa öðrum“

─ segir Hulda Hjálm­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Krafts, en viðskipta­vinir VÍS hafa nú safnað rúmum fimmtán millj­ónum króna sem fara í góð málefni.

Aftast eru þeir Guðmundur Óskarsson, markaðsstjóri VÍS, og Sveinn G. Þórhallsson frá VÍS. Í miðju frá vinstri eru Hjördís Ýrr Skúladóttir, form. stjórnar MS félagsins, Sveinn Guðmundsson, form. Hjartaheilla og Berglind Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri MS félagsins. Fremst frá vinstri eru Valgerður Hermannsdóttir varaform. Hjartaheilla og svo Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts.

Undan­farið ár hafa viðskipta­vinir VÍS haft val um að styrkja góðgerð­ar­félög þegar þeir kaupa líf og sjúk­dóma­trygg­ingar á netinu. Fyrir hverja milljón, sem viðskipta­vinur valdi í trygg­ing­ar­fjár­hæð, fóru 1.000 krónur til góðgerð­ar­fé­lags. Styrk­urinn kemur alfarið frá VÍS. Valið stóð á milli þriggja góðgerð­ar­fé­laga: Krafts, Hjarta­heilla og MS-fé­lags­ins. Á rúmu ári söfn­uðust 15.390.757 krónur.

15 millj­ónir á rúmu ári

VÍS styður heims­markmið númer þrjú sem beinir kast­ljósinu sínu að heilsu og vellíðan. Sérstök áhersla er lögð á öflugar forvarnir í nánu samstarfi við viðskipta­vin­ina. Þess vegna gátu viðskipta­vinir VÍS styrkt þessi góðu málefni þegar þeir keyptu líf- og sjúk­dóma­trygg­ingar á netinu. Frá því samstarfið við góðgerð­ar­fé­lögin hófst, sem var í lok mars á síðasta ári, hafa rúmar fimmtán millj­ónir króna safn­ast. Upphæðin skiptist á eftir­far­andi hátt: Kraftur fær 7.800.673 kr., Hjarta­heill fær 4.996.184 kr. og MS félagið fær 2.593.900 kr.

Guðmundur Óskars­son, mark­aðs­stjóri VÍS, var ánægður með móttök­urnar hjá viðskipta­vinum VÍS. ,,Við erum virki­lega stolt og þakklát fyrir hversu vel viðskipta­vinir okkar tóku þessu fram­taki. Enginn býst við því að missa heilsuna en stað­reyndin er sú að allir geta lent í því. Líf- og sjúk­dóma­trygg­ingar eru því mikil­vægar til þess að draga úr fjár­hags­legum afleið­ingum þess að veikjast alvar­lega. Við erum viss um styrk­urinn nýtast vel í því mikil­væga starfi sem góðgerð­ar­fé­lögin sinna ─ og erum stolt af því að geta lagt okkar að mörkum, ekki síst í þegar þrengir að rekstr­ar­um­hverfi góðgerð­ar­fé­lag­anna í heims­far­aldr­inum. Styrk­urinn er því vonandi byr undir báða vængi hjá öllum félög­unum.

Hulda Hjálm­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Krafts, var ánægð með stuðn­ing­inn. „Það er frábært þegar fyrir­tæki eins og VÍS sýnir samfé­lags­lega ábyrgð í verki og lætur gott af sér leiða til mikil­vægra málefna. Sérstak­lega í ljósi þess að einstak­lingar sem greinast með krabba­mein, tauga­sjúk­dóma og hjarta­sjúk­dóma eiga oft erfiðara með að sjúk­dóma­tryggja sig eftir á. Við erum einstak­lega þakklát fyrir þetta rausn­ar­lega framlag sem mun svo sann­ar­lega nýtast í þágu ungs fólks með krabba­mein og aðstand­enda þeirra. Takk fyrir að hjálpa okkur að hjálpa öðrum.”

Fréttasafn
Deila frétt