Fréttasafn

|

22.09.2021

Svart sýni­leika­merki rang­lega merkt

Undan­farið höfum við verið með svart merki sem líma má á fatnað, töskur, hjól eða aðra staði sem henta til að auka sýni­leika í myrkri. Merkið uppfyllir ekki EN 13356 endur­skins­stað­alinn og því mega umbúð­irnar ekki bera CE merkið en það hefur verið á umbúð­unum. Búið er að afmá CE merk­inguna af þeim umbúðum sem eftir eru. Þetta svarta merki er svipað gráu merki sem við höfum verið með en það merki uppfyllir endur­skins­stað­al­inn. En þar sem við viljum að allir geti látið öryggi passa þá getur það hentað þeim sem vilja láta lítið bera á merkinu t.d. á svartri flík sinni.

Þar sem sá tími árs er kominn þar sem við þurfum að huga að sýni­leika okkar minnum við á merkin sem hægt er að nálgast á skrif­stofum okkar.

  • Hang­andi endur­skins­merki sem best er að láta hanga neðar­lega á fatnaði þannig að sjáist bæði að frama og aftan.

  • Grátt endur­skins­merki til að líma á fatnað, töskur, hjól eða bara það sem hentar.

  • Svart merki til að líma á fatnað, töskur, hjól eða bara það sem hentar.

Fréttasafn
Deila frétt