Fréttasafn

|

18.03.2021

Spennum beltin alltaf

Bílbelti hafa margoft sannað gildi sitt. Samt sem áður eru alltaf einhverjir sem sleppa því að nota belt­ið. 

Belti sem getur skipt öllu máli ef eitt­hvað gerist og tekur bara tvær til þrjár sekúndur að spenna. Samkvæmt Rann­sókn­ar­nefnd samgöngu­slysa hefðu 16 ökumenn og farþegar í bifreiðum lifað af bílslys á árunum 2015 til og með 2020, ef þeir hefðu verið með beltin spennt. Einn til viðbótar við þessa tölu er einstak­lingur sem var með bílbeltið rang­lega spennt eða undir hand­ar­krik­anum.

Það leggja allir af stað með það fyrir augum að ekkert gerist og það er mjög margt hægt að gera til þess að minnka líkur á slysum. Enginn ætti að sleppa því að spenna beltið. Ekki einu sinni þótt ekið sé stutta vega­lengd.

Fréttasafn
Deila frétt