Fréttasafn

|

18.05.2021

„Spenn­andi fram­setning getur gert gæfumun­inn“

Nýverið efndu VÍS og Vinnu­vernd­ar­skólinn til samkeppni meðal nemenda í tölvu­leikja­gerð við Mennta­skólann á Ásbrú.

Tölvu­leik­irnir eru loka­verk­efni 25 nemenda á náms­braut­inni og er óhætt að segja mjög vel hafi tekist til. Forvarnir og fræðsla taka breyt­ingum í takt við nútímann og vel við hæfi að miðla örygg­is­málum fyrir Vinnu­skólann með tölvu­leik enda mark­hóp­urinn þar 13-15 ára ungmenni.

„Við leggjum ríka áherslu á öflugar forvarnir í öllu okkar starfi og þess vegna erum við stolt af samstarfinu við Vinnu­vernd­ar­skólann og náms­braut Keilis í tölvu­leikja­gerð. Tölvu­leikir eru góður miðill fyrir vinnu­vernd og öryggi ─ og við erum virki­lega ánægð með útkomuna á samstarf­inu" sagði Ágúst Mogensen, sérfræð­ingur í forvörnum hjá VÍS.

Hress­leikinn var alls­ráð­andi á verð­launa­af­hend­ing­unni en félag­arnir Aðal­björn, Mantvilas, Darel og Halldór báru sigur úr býtum með leikinn Safety Works. Allir nemendur fengu síma­haldara frá VÍS og pítsu­veislu í verð­laun. Því til viðbótar fengu sigur­veg­ar­arnir gjafa­bréf frá Yay og blóm­vönd. 

Sigurvegarnir ásamt fulltrúum Vinnuverndarskólans,, leiðbeinandanum við Keili og Ágústi Mogensen frá VÍS.

Ágúst sagði jafn­framt að mikil samkeppni væri um athygli og tíma viðskipta­vina og því þyrfti að vanda vel fram­setn­ingu á öllu efni. „VÍS er á staf­rænni vegferð og við ætlum að breyta því hvernig trygg­ingar virka. Ökuvísir er gott dæmi þetta en Ökuvísir er app sem hjálpar viðskipta­vinum okkar að keyra betur.  Appið byggir á leikja­væð­ingu (e. gamification) og er skemmti­lega fram­sett. Samkeppnin er hörð og því hefur aldrei verið jafn mikil­vægt að vanda vel til verka."

En af hverju verða sum öpp og vefsíður vinsælli en aðrar? „Svarið er ekki einfalt en við vitum samt að skemmtileg og spenn­andi fram­setning getur gert gæfumun­inn. Þau sem þróa og hanna tölvu­leiki eru á heima­velli því þau kunna að halda athygli fólks. Þess vegna er sú þekking mjög eftir­sótt“ bætti Ágúst við. Því er ljóst að þessir upprenn­andi tölvu­leikja­smiðir eiga fram­tíðina fyrir sér.

Fréttasafn
Deila frétt