Fréttasafn

|

22.02.2021

Sólgler­augu eða rúðu­skafa? Eða bara bæði!

Veðrinu er ansi misskipt á milli lands­hluta þessa dagana. Allt frá skafrenn­ingi og snjó yfir í auðar götur og sól.

En sama hvernig veðrið er þá er mikil­vægt að tryggja góða sýn út um rúður bíls­ins. Munum eftir að skafa allan hringinn og taka snjó af ljósum eða nota sólskyggni, sólgler­augu og tryggja að framrúðan sé hrein áður en lagt er af stað. Sérstak­lega þegar sólin er lágt á lofti.

Klikkum ekki á þessu!

 

Fréttasafn
Deila frétt