Fréttasafn

|

26.08.2021

Skóla­börn á ferð og flugi

Þar sem skólastarf er hafið og umferð víða að þyngjast hvetjum við ökumenn til að sýna tillits­semi og fara að öllu með gát, sérstak­lega í og við skóla­lóðir.

Þar eru vegfar­endur sem taka oft á tíðum óvæntar og ófyr­ir­séðar ákvarð­anir og því þarf athyglin að vera öll við akst­ur­inn.

Við hvetjum foreldra til að fara yfir þær hættur sem leynast í umferð­inni með börnum sínum. Ekki aðeins þeim sem yngri eru heldur einnig þeim eldri þar sem notkun rafhlaupa­hjóla og vespa hefur aukist mjög að undan­förnu en mikil­vægt er að ferða­mát­arnir séu rétt notaðir.

  • Hver sé örugg­asta leiðin í skól­ann.

  • Að umferða­reglur þurfi alltaf að virða, en ekki bara stundum.

  • Að þau séu viss um að aðrir vegfar­endur viti af þeim t.d. þegar þau fara yfir götu eða hjóla fram hjá öðrum.

  • Vera meðvituð um trufl­unina sem heyrn­artól og sími hafa í umferð­inni.

  • Tryggja sýni­leika með endur­skini eða ljósum.

  • Nota ávallt örygg­is­búnað þegar við á eins og bílbelti, bílstól og hjálm.

Fréttasafn
Deila frétt