Fréttasafn

|

21.05.2021

Lætur þú öryggið passa?

Getur verið örygg­is­tækin á þínu heimili séu falin ofan í skúffu af því þau eru ekki nógu smart?

Við þurfum að breyta því hvernig við hugsum svona mikil­vægar græjur. Við þurfum að hafa örygg­is­tækin sýnileg svo þau séu aðgengileg þegar við þurfum á þeim að halda. Eldvarna­teppið gerir nefni­lega lítið gagn ef það er falið ofan í skúffu. Þar kemur falleg hönnun til hjálpar – og færir okkur mikilvæg örygg­is­tæki sem passa heim­ilið og fjöl­skylduna hvar og hvenær sem er. Til er fjöl­breytt úrval af flottum örygg­is­tækjum sem eru mikil prýði upp á vegg. Viss­urðu til dæmis að það er hægt að fá reyk­skynjara sem er eins og fluga? Talandi um flugu á vegg!

Fáðu innblástur á vis.is og kynntu þér fjöl­breytt úrval af flottum örygg­is­tækjum. Sjáðu hvað er í boði og láttu öryggið passa.

Varstu búin að sjá auglýs­inguna í herferð­inni? Hana má sjá hér.

Fréttasafn
Deila frétt